Djöfull var ég sniðugur um daginn í vinnunni. Ég sá kassa koma
út úr vélinni sem var með stórt gat á botninum. Þá gerðist ég svo
sniðugur að horfa í gegnum gatið á kassanum og það fannst Dane
fyndið. Þarna sá ég tilvalið tækifæri til að sprella allsvakalega
og gerði mér lítið fyrir og stakk höfðinu í kassann og horfði svo í
gegnum hann, þá fór Dane að skellihlæja. Ég er svo sniðugur.
Hugsað : Ég veit alveg að þegar límbandið rúllast upp þá er það
ekki gott!!! Farðu bara og labbhlauptu einhvert og láttu mig
vera!
Sagt: Ég veit
Þessa dagana hugsa ég ekki um neitt annað en tónlist, kvenmenn
og Pólverja. Ástæðan er sú að ég er bara með Pólverjum í vinnunni,
hlusta á tónlist allan vinnudaginn og horfi á dagatöl með
léttklæddum kvenmönnum í vinnunni.
Þessi vinna hefur gefið mér mikinn tíma til að hlusta á tónlist í
Creative Nomad Jukebox Zen Xtra spilaranum mínum.Í honum hlusta ég
aðallega á heila diska. Manni hefur tekist að rifja upp gömul kynni
sem og kynna sér nýja diska sem maður hefur ekki hlustað á áður.
Hérna ætla ég að mæla með nokkrum diskum til að hlusta á í
vinnunni, mjög góðir til að stytta 8 klukkutíma svolítið.
2pac – Me Against
the World
2pac – All Eyez on
Me
2pac – The 7 Day
Theory (Makaveli)
Antony and the
Johnsons – I Am a Bird Now
Arcade Fire –
Funeral
At the Drive-in –
Relationship of Command
Beach Boys – Pet
Sounds
Big L – The Big
Picture
Big Pun –
Endangered Species
Bob Dylan – The
Essential Bob Dylan (aðallega diskur 1)
Bob Marley –
Legend
Cat Stevens – The
Very Best of Cat Stevens
Clap Your Hands
Say Yeah – Clap Your Hands Say Yeah
Coldplay –
Parachutes
Coldplay – A Rush
of Blood to the Head
Coldplay –
X&Y
Common – Be
Daft Punk –
Discovery
Daft Punk – Human
After All
Damien Rice –
O
David Bowie –
Hunky Dory
David Bowie – The
Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars
David Bowie –
Space Oddity
David Bowie –
Aladdin Sane
David Bowie –
Diamond Dogs
David Gray – White
Ladder
David Gray – Life
in Slow Motion
DMX – It´s Dark
and Hell Is Hot
DMX - …and then
there was X
Dr. Dre –
Chronic
Dr. Dre – Chronic
2001
Emilíana Torrini –
Fisherman´s Woman
Eminem – Slim
Shady LP
Eminem – Marshall
Mathers LP
Eminem – Eminem
Show
Frank Zappa –
Strictly Commercial
Jay–Z –
Blueprint
Jay-Z – Reasonable
Doubt
Jeff Buckley –
Grace
Jimi Hendrix –
Experience Hendrix : The Best of Jimi Hendrix
John Lennon –
Working Class Hero : The Definitive Lennon
Kanye
West - College
Dropout
Kashmir –
Zitilites
Keane – Hopes and
Fears
Led Zeppelin –
Remasters
Leonard Cohen –
The Songs of Leonard Cohen
Miles Davis – Kind
of Blue
Mugison – Mugimama
Is this Monkeymusic?
Muse –
Absolution
Muse – Origin of
Symmetry
Muse – Showbiz
N.E.R.D. – In
Search of…
Nas – Illmatic
Nas –
Stillmatic
Non Phixion – The
Future Is Now
Norah Jones – Come
Away With Me
Norah Jones –
Feels Like Home
Notorious B.I.G. –
Ready to Die
Notorious B.I.G. –
Life After Death
Oasis – (What´s
the Story) Morning Glory
Oasis – Be Here
Now
Oasis – Don´t
Believe the Truth
Outkast –
Stankonia
Outkast –
Speakerboxx/The Love Below
Outkast –
Aquemini
Paul McCartney –
Chaos and Creation in the Backyard
Pink Floyd – Dark
Side of the Moon
Pink Floyd – The
Wall
Pink Floyd – Wish
You Were Here
Radiohead – The
Bends
Radiohead – Ok
Computer
Radiohead –
Amnesiac
Radiohead – Kid
A
Radiohead – Hail
to the Thief
Ray Charles –
Genius Loves Company
Sigur Rós – Ágætis
Byrjun
Sigur Rós – ()
Sigur Rós –
Takk…
Snoop (Doggy) Dogg
– Doggystyle
Starsailor – Love
Is Here
Starsailor – On
the Outside
Starsailor –
Silence Is Easy
Sufjan Stevens –
Illinois
Supergrass – Road
to Rouen
The Beatles –
Rubber Soul
The Beatles –
Revolver
The Beatles – Sgt.
Pepper´s Lonely Hearts Club Band
The Beatles –
Magical Mystery Tour
The Beatles –
White Album
The Beatles –
Abbey Road
The Cure –
Greatest Hits
The Doors – The
Best of the Doors
The Eagles – The
Very Best of the Eagles
The Prodigy – The
Fat of the Land
The Streets –
Original Pirate Material
The Streets – A
Grand Don´t Come for Free
The Strokes – Is
this It
The Strokes – Room
on Fire
The Strokes –
First Impressions of Earth
The Verve – Urban
Hymns
Tom Waits –
Closing Time
Travis – Invisible
Band
Travis – The Man
Who
Endilega kommentið og mælið með einhverjum diskum fyrir mig til
að hlusta á.
Ég lenti í sérstökum aðstæðum um daginn. Ég var að spila með
Streng í Stúdentakjallaranum og ákveð að djamma aðeins í bænum
með Ásgeiri og fleirum. Við förum inn á 11una og skemmtum okkur
vel. Síðan þegar ég stend við dj búrið sem er þarna og geri í
rauninni ekki neitt kemur einhver greinilega útúrspíttaður gaur og
spyr: "Heldurðu að þú sért eitthvað?!!" Á þessum tímapunkti er eins
og tíminn stoppi í smá stund og ég hugsa: "Hvernig á ég að bregðast
við þessu? Aha! Ég er kominn með pottþétt plan" Síðan segi ég: "Ég
er bara að skemmta mér og reyna að hafa gaman. Ég vil ekkert bögg."
Þá verður hann ennþá æstari og segir: "Ekki halda að þú sért
eitthvað!!" Þá segi ég: "Ég er ekkert að leita að neinu, bara að
skemmta mér með vinum mínum og í góðu skapi" Þetta hefur eitthvað
farið illa í greyið því þá segir hann(og er frekar hugmyndaríkur í
þessum hótunum sínum): "HELDURÐU AÐ ÞÚ SÉRT EITTHVAÐ" Þá stoppar
tíminn aftur og ég hugsa: "Ok. Plan B." og ég segi(með smá
háðstóni): "Nei, ég er ekki neitt." Hann virtist bara vera að reyna
að koma þessu á hreint því hann fór um leið og ég sagði
þetta. Gaman hvað sumir geta verið skemmtilegir á
djamminu.
Sá sem er fyrstur að fatta úr hvaða lagi fyrirsögnin er,
fær 2 bjóra frá mér.